top of page

Leirbakaríið

leirbakariid-logo.jpg

Leirbakaríið er staðsett á Suðurgötu 50a á Akranesi. Það er stofnað og rekið af listakonunum og kennurunum þeim Kolbrúnu Sigurðardóttur (KolSi) og Maríu Kristínu Óskarsdóttur (Maju Stinu). Þær eru báðar menntaðar í leirlist, Maja Stína lærði í Danmörku og KolSi í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og tók master frá Ungverjalandi. Auk þess eru þær báðar kennaramenntaðar. Leiðir þeirra lágu fyrst saman árið 2009, þegar þær ásamt fleiri leirlistamönnum stofnuðu galleríið Kaolin í Reykjavík.  

Í Leirbakaríinu vinna KolSi og Maja Stína að list sinni, halda námskeið og geta tekið á móti hópum í kynningu, hópefli eða aðra skapandi skemmtun.

Hafa samband:

  • Homepage_symbol_copy
  • Facebook
  • Netfang

Leirbakaríið

Nafnið Leirbakaríið kom eiginlega af sjálfu sér þar sem þær kolféllu fyrir húsnæðinu, andanum sem í því býr og vinnurýminu. Í þessu húsnæði hefur verið rekið bakarí frá árinu 1967 þegar húsið var byggt en nú er þar “bakaður” leir, þó við um það bil 1000°C hærra hitastig en bakstur Brauða- og kökugerðinnar. Það kom aldrei neitt annað nafn til greina hjá þeim stöllum.

Maja Stína

Maja Stína vinnur aðallega nytjahluti og er postulín hennar dálæti. Flest verkin rennir hún á rennibekk, svo sem skálar, kertastjaka, diska og bolla. Hvert berk hefur sinn karakter – ákveðinn “rythma”.  Hún vill að fólk velji sinn kaffibolla og finni hvernig hann passar í höndina. Það er henni hugleikið; að fá fólk til að njóta bollans með höndum, bragði og augum. 

KolSi

Fyrir KolSi er listsköpun ævintýri, leiðangur og rannsóknir í leit að kjarnanum, einhverju sem segir sögu eða hefur merkingu. Hún vinnur jöfnum höndum í leir og mála. Í leirverkum dansar hún gjarnan á línunni á milli nytjalistar og skúlptúrs. Málverkin einkennast af glaðværð, leik, ævintýraþrá og frelsi þar sem íslensk náttura, húmor og daglegt líf eru oftar en ekki viðfangsefnið.

Rýmið

KolSi og Maja Stína hönnuðu rýmið fyrir verkstæðið með það í huga að geta boðið upp á fjölbreytt námskeið bæði fyrir börn og fullorðna auk þess sem þær hafa hvor sitt vinnurýmið.

 

Í Leirbakaríinu er einnig ætlunin að taka á móti smærri hópum í vinnustaðaheimsóknir, hópefli eða aðra skapandi skemmtun.  

Maja Stina og KolSi í Leirbakaríinu
20181217_162930.jpg
20181214_165458.jpg
20181217_164745.jpg
20181214_165527.jpg
20181217_164012.jpg
20181214_165557.jpg
20181217_163401.jpg
20181217_184609.jpg
Ó borg mín borg
bottom of page